JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri.
JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.
JYSK markaðsdeild - Umsjón með samfélagsmiðlum
Við leitum að skapandi og drífandi einstaklingi sem hefur reynslu af samfélagsmiðlaumsjón og þekkingu á stafrænni markaðssetningu. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði í starfi, vera lausnarmiðaður, hugmyndaríkur og metnaðarfullur. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með samfélagsmiðlum og hönnun efnis fyrir helstu miðla.
- Uppsetning og umsjón stafrænna herferða.
- Eftirfylgni og árangursmælingar.
- Umsjón með markpósti.
- Önnur tilfallandi verkefni innan markaðsdeildar.
- Skýrslugerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla í stafrænni markaðssetningu.
- Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Haldgóð þekking á öllum helstu samfélagsmiðlum.
- Góð samskiptahæfni og færni til að vinna í hóp.
- Góð þekking og reynsla á tólum eins og Facebook pixel, Mailchimp, TikTok, Google Ads, Meta Business Manager og Meta Ads Manager.
- Reynsla af notkun Indesign og Photoshop skilyrði.
Auglýsing birt6. júní 2024
Umsóknarfrestur20. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AuglýsingagerðFrumkvæðiMarkaðssetning á netinuSjálfstæð vinnubrögðSkilgreining markhópa
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (9)
Markaðsstjóri - Álfaborg
Ráðum
Ertu markaðssnillingurinn sem við leitum að?
Syndis
Marketing manager
Reykjavik Out Luxury Tours
Markaðssérfræðingur
Vinnvinn
Lætur þú verkin tala?
Bændasamtök Íslands
Skrifstofustarf á sviði mannauðs og innri þjónustu
ÍSOR
Social Media Assistant & Content Creator
Ice Explorers
Markaðsfulltrúi
Dufland ehf
Marketing specialist / Sérfræðingur í markaðssetningu
Venja