

Íþróttamiðstöðin í Vogum óskar eftir laugavörðum í sumarafleysingar sumarið 2026
Íþróttamiðstöðin í Vogum leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa sem laugaverðir sumarið 2026. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf íþróttamiðstöð þar sem öryggi gesta, góð þjónusta og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi.
Íþróttamiðstöðin í Vogum er lifandi og mikilvægur samkomustaður í samfélaginu þar sem áhersla er lögð á heilsu, hreyfingu og vellíðan allra aldurshópa. Við leggjum metnað í að skapa jákvætt og öruggt umhverfi fyrir bæði gesti og starfsfólk.
Um er að ræða þrjár stöður á tímabilinu 25. maí – 31. ágúst 2026 þar sem unnið er á dag,-kvöld- og helgarvöktum. Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsækjandi þarf standast námskeið í Öryggi og björgun og hæfnispróf skv. III. viðauka reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Áætlað er að námskeið og hæfnispróf fari fram í maí 2026.
Sjá nánar: https://ust.is/hringrasarhagkerfi/hollustuhaettir/sundstadir/haefnisprof-starfsmanna/
- Umsjón með öryggi sundlaugargesta í og við laug
- Eftirlit í bað- og búningsklefum
- Almenn afgreiðsla og þjónusta við iðkendur og gesti
- Eftirfylgni með umgengisreglum
- Almenn þrif
- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Hreint sakarvottorð
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
- Umsækjandi þarf að sækja námskeið í skyndihjálp
- Góð færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki
- Rík þjónustulund og stundvísi
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli skilyrði
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí og sótt námskeið í skyndihjálp og björgun um miðjan maí.
Íslenska
Enska







