
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Stekkjaskóli er hannaður og byggður sem teymiskennsluskóli, með vel skipulögðum árgangasvæðum, góðum list- og verkgreinastofum, glæsilegu bókasafni og náttúrufræðistofu með stórum gróðurskála. Byggingin þykir með glæsilegri skólabyggingum á landinu.
Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Íþróttakennari Stekkjaskóla
Óskað er eftir íþróttakennara í tímabundna stöðu vegna fæðingarorlofs skólaárið 2024-25. Um er að ræða 100% starf frá 1. ágúst til að kenna íþróttir og sund. Sundkennslan fer fram í Sundhöll Selfoss og íþróttakennslan fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla og í fjölnotasal Stekkjaskóla. Auk þess er töluvert um útinám í nærumhverfi. Íþróttahús verður byggt í 3. áfanga nýbyggingar skólans. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum kennara sem hefur m.a. áhuga á útinámi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklinga.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara/ íþróttakennara
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt26. mars 2024
Umsóknarfrestur8. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Heiðarskóli - Umsjónarkennari á miðstigi
Reykjanesbær

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli

Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla, afleysing í eitt ár.
Árbæjarskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Leiðbeinendur í leikskóla á Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í unglingadeild – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær