NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Íslenskumælandi aðstoðarverkstjórnandi óskast í Keflavík

IMPORTANT NOTICE: ICELANDIC SPEAKING APPLICANTS ONLY

Rúmlega þrítugur karlmaður í Reykjanesbæ leitar eftir aðstoðarverkstjórnanda á aldrinum 25-45 ára.

Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi náð 25 ára aldri og hafi gott vald á íslensku.

Um er að ræða 46% starf með möguleika á afleysingum. Starfið felst í að aðstoða manninn við verkstjórn varðandi NPA samning. Staðan snýst því um að aðstoða við allt utanumhald, starfsmannamál, vaktaplön og skipulag ásamt fleiru tilfallandi.

Unnið er á breytilegum dag-, kvöld,- nætur og helgarvöktum.

Einstaklingurinn er eingöngu líkamlega fatlaður og er fær um margt sjálfur. Hann getur staðið uppréttur og gengið með grind á milli staða en þarf alltaf að vera með aðstoðarmann sér við hlið. Hann fer í ræktina og sjúkraþjálfun dags daglega og heldur uppi skemmtilegum samræðum. Hann talar við mann en flest lengri samtöl fara fram á stafaspjaldi.

Hann á 2 börn og hund sem lita lífið alla daga.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

Skipulagshæfileikar

Færni í mannlegum samskiptum

Líkamlega hraust(ur)

Bílpróf, almenn ökuréttindi

Stundvísi

Frumkvæði

Sjálfstæð vinnubrögð

Auglýsing stofnuð7. desember 2023
Umsóknarfrestur21. desember 2023
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar