
Íslenski dansflokkurinn
Íslenski dansflokkurinn er framsækinn nútímadansflokkur skipaður úrvalsdönsurum í hæsta gæðaflokki. Dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun með aðsetur í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn leggur áherslu á að kynna íslenskum áhorfendum metnaðarfull verk og hefur unnið með mörgum fremstu danshöfundum Evrópu auk þess að leggja rækt við íslenska danssköpun.
Íslenski dansflokkurinn hefur öðlast viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum og hefur flokknum verið boðið að sýna í mörgum af helstu leikhúsum og hátíðum erlendis. Dansflokkurinn leggur jafnframt áherslu á samstarf við aðrar sviðslista- og menningarstofnanir sem og samvinnu við listafólk úr öðrum listgreinum, auk þess sem flokkurinn er virkur þátttakandi í alþjóðlegum upplýsinga- og samstarfsnetum.
Íslenski dansflokkurinn sýnir reglulega í Borgarleikhúsinu og heldur einnig sýningar utan höfuðborgarinnar.

Markaðsstjóri Íslenska dansflokksins
Laust er til umsóknar starf markaðsstjóra Íslenska dansflokksins
Íslenski dansflokkurinn leitar að skapandi og kraftmiklum einstaklingi með þekkingu á markaðsstörfum og góða innsýn inn í starfsemi sviðslista
Helstu verkefni:
- Yfirumsjón með kynningarmálum Íslenska dansflokksins
- Ábyrgð á ímyndar- og markaðsmálum Íslenska dansflokksins
- Umsjón með myndvinnslu og myndatökum á verkefnum Íslenska dansflokksins
- Verkefnisstjórn með afmörkuðum kynningarverkefnum og styrkumsóknum
- Umsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum
- Kynningarmál og samskipti við fjölmiðla
- Þróun stafrænnar miðlunar og markaðssetningar
Menntun og hæfniskröfur:
- Reynsla af kynningar- og markaðsmálum
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð tölvukunnátta, með sérstakri áherslu á myndvinnsluforrit. Þekking á Adobe CC er kostur.
- Metnaður og frumkvæði í starfi
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Sköpunargleði og gott auga fyrir hönnun
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttum verkefnum samtímis
Frekari upplýsingar um starfið:
- Um er að ræða 100% starf
- Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast í gegnum Alfreð ráðningarkerfið. Umsókn skal fylgja kynningarbréf og ítarleg ferilskrá, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda.
- Launakjör samkvæmt kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur undirritað fyrir hönd ríkissjóðs
- Umsóknarfrestur er til og með 1. október, 2019
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hlynur Páll Pálsson í síma 588-0900. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið [email protected].
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Auglýsing birt30. ágúst 2019
Umsóknarfrestur1. október 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




