ÍSAT kennari, sérkennari og/eða þroskaþjálfi
Salaskóla vantar kennara í ÍSAT kennslu sem og aðra sérkennslu/þjálfun í sérúrræði.
Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna forfalla. Til greina kemur að ráða hvort sem er í fullt starf eða hlutastarf. Starfið gæti hentað 5. árs kennaranemum.
Í Salaskóla vinna kennarar og annað starfsfólk saman í teymum að kennslu og þjálfun nemenda og við undirbúning og skipulagningu náms. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á yfirstandandi skólaári eru nemendur um 530 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa ríflega 100 starfsmenn.
Helstu verkefni snúa að kennslu í íslensku sem annað tungumál (ÍSAT) og kennslu/þjálfun nemenda með sértækar námslegar þarfir eða aðrar sérþarfir, en einnig þjálfun í félagsfærni, gerð einstaklingsáætlana og önnur sambærileg verkefni. Viðkomandi mun vinna í þéttu teymissamstarfi með kennurum, þroskaþjálfum og öðrum samstarfsaðilum að námi og þroska nemenda.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Ráðning þarf að vera sem fyrst og er tímabundin út yfirstandandi skólaár.
- Starfshlutfall er sveigjanlegt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem kennari eða þroskaþjálfi og leyfisbréf sem slíkur. Til greina kemur að ráða 5. árs kennaranema.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni.
- Samstarfshæfni, skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og stundvísi.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í teymiskennslu/teymisvinnu.
- Vera tilbúin/n í þverfaglegt samstarf og uppbyggileg samskipti við foreldra og nærsamfélag, með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Nauðsynlegt er að hafa gott vald á íslensku, töluðu máli sem og les- og ritmáli.
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.
Upplýsingar gefa Kristín Sigurðardóttir skólastjóri og Hrefna Björk Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 441-3200/840-2393.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.