
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Innkaupafulltrúi í byggingarvöru
BYKO er að leita að öflugum einstaklingi til að sjá um innkaup á byggingarvörum sem hluti af grófvöruteymi félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innkaup frá innlendum og erlendum birgjum
- Skipulagning og eftirlit með birgðum og innflutningi
- Verðútreikningar og eftirlit með verðþróun
- Samningar og samskipti við birgja
- Vöruþróun í samvinnu við vöruflokkastjóra
Við leitum að einstaklingi með:
- Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
- Góða tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér fljótt kerfi og ferla
- Menntun eða reynslu sem nýtist í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og samningatækni
- Áhuga á byggingariðnaði
BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bragi Þór Antoníusson, framkvæmdastjóri markaðs- og vörustjórnunarsviðs - [email protected]
Auglýsing birt19. janúar 2026
Umsóknarfrestur27. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Þekkt barnafataverslun leitar að sölufulltrúa í fjölbreytt og skemmtilegt starf
Polarn O. Pyret

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Útilíf Kringlunni - Fullt starf
Útilíf

Innkaupafulltrúi
Securitas

Verkefnastjóri innkaupa og rekstrar
Akraneskaupstaður

ATVINNA Í BOÐI HELGAR- OG SUMARSTARF
Birgisson

Söluráðgjafi í verslun
Birgisson

Sumarstarf í verslun - BYKO Selfossi
Byko

Sölufulltrúi í verslun Stórhöfða 25. Helgar- og sumarstarf.
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Verslunarstjóri
Rafkaup

Sérfræðingur í birgðahaldi og innkaupaeftirliti
Krónan

Fjármála- og stjórnsýslusvið - Innkaupastjóri Reykjanesbæjar
Reykjanesbær