Sóltún Heilsusetur
Sóltún Heilsusetur
Sóltún Heilsusetur

Iðjuþjálfi - Heilsusetur

Sóltún Heilsusetur á Sólvangi í Hafnarfirði leitar eftir Iðjuþjálfa í dagvinnu á 39 rýma endurhæfingardeild fyrir aldraða. Um er að ræða deild, þar sem fólk dvelur í 4-6 vikur í senn með það að markmiði að efla virkni í daglegu lífi og efla þannig getu þeirra til sjálfstæðrar búsetu á eigin heimili.

Við leitum að iðjuþjálfa með jákvætt viðmót og faglegan metnað, sem hefur áhuga á þátttöku í faglegri framþróun. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi. Skilyrði er að viðkomandi hafi góða íslenskukunnáttu og löggilt starfsleyfi iðjuþjálfa.

Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkomulagsatriði. Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Iðjuþjálfun með það að markmiði að auka lífsgæði, sjálfsbjargargetu og virkja athafnaþrá dvalargesta á heilsusetri.  

  • Mat við endurhæfingu  

  • Ráðgjöf og fræðsla til dvalargesta 

  • Teymisvinna með sjúkraþjálfara og öðrum stjórnendum 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilt starfsleyfi iðjuþjálfa 

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar 

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 

Nánari upplýsingar veita:  

Alma Rún Vignisdóttir, deildarstjóri Heilsuseturs; alma@soltun.is  

Bryndís Guðbrandsdóttir, forstöðumaður dag- og heimaþjónustu; bryndis@soltun.is 

Sólvangur

Innan Sólvangs er nú þegar 71 hjúkrunarrými, 12 manna sérhæfð dagþjálfunardeild, 14 manna dagdvöl og Sóltún Heima (alhliða heimaþjónusta). 

Við höfum á að skipa öflugum hópi starfsmanna, með mikinn metnað fyrir lífsgæðum og vellíðan þeirra sem hjá okkur dvelja.  

Sólvangur er rekinn af Sóltúni öldrunarþjónustu ehf.  

Auglýsing birt5. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar