
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Húsvörður
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf húsvarðar á skipulags- og umhverfissviði. Um er að ræða 100% starf frá 1. maí 2024. Leitað er eftir jákvæðum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt og skemmtilegt starf við umsjón og viðhald fasteigna sveitarfélagsins.
Húsvörður hefur yfirsýn yfir fasteignir í eigu sveitarfélagsins og fylgist með ástandi þeirra. Sér um almenna húsvörslu, daglegt viðhald og umsjón.
Í starfsmannamálum eru gildin virðing, áreiðanleiki og metnaður höfð að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fasteignum sveitarfélagsins í Borgarbyggð
- Fylgist með ástandi húsa, lóða og búnaðar stofnana og annast lagfæringar, viðhald og viðgerðir Smærra viðhald fasteigna, lóða, húsgagna og innréttinga
- Eftirlit og umsjón með snjómokstri og hálkueyðingu á lóðum stofnana
- Hefur eftirlit með aðgengismálum stofnana
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um iðnmenntun
- Meistaramenntun í iðn er kostur
- Reynsla og þekking á sambærilegum störfum er kostur
- Sveigjanleiki, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samvinnu- og samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Stytting vinnuvikunnar
- Heilsustyrkur til starfsmanna
Auglýsing birt23. febrúar 2024
Umsóknarfrestur8. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)

