Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Húsavík - Bílstjóri

Pósturinn óskar eftir bílstjóra í fullt starf á Húsavík.

Starfið felur í sér akstur á Vopnafjörð, Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópasker ásamt því að sinna tilfallandi verkefnum.

Vinnutíminn er frá kl. 07:30 til 15:30, alla virka daga.

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 12. ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur

  • Bílpróf
  • Reynsla af langakstri í krefjandi aðstæðum er kostur
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Íslensku- eða enskukunnátta er kostur
  • Grunn tölvukunnátta

Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Sótt er um starfið á www.posturinn.is/atvinna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar Traustason, rekstrarstjóri, í tölvupósti - runart@postur.is.

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Auglýsing birt24. júlí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMjög góð
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Garðarsbraut 70, 640 Húsavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar