Hugbúnaðarþróun
Viltu taka þátt í að þróa nútímalegar tæknilausnir sem hafa áhrif á fjölda viðskiptavina.
Við leitum að öflugum bakendaforritara í hugbúnaðarþróunarteymi í upplýsingatæknideild Festi til að vinna að app- og vefþróun hjá Festi og dótturfélögum. Festi er móðurfélag N1, Krónunnar, Lyfju, ELKO, Bakkans og Yrkis.
Helstu verkefni
- Þróun á smáforritum
- Þróun á vefverslunum
- Þróun á stafrænum lausnum til aukinnar sjálfvirkni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Tveggja ára reynsla í app- og/eða vefþróun
- Reynsla af þróun í Python
- Reynsla af þróun í .net
- Þekking á AWS er kostur
- Kostur að geta unnið í bæði fram- og bakenda
- Geta til að vinna sjálfstætt sem og í góðu teymi
Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.
Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir Forstöðumaður upplýsingatækni (linda@festi.is )
Umsóknarfrestur er til 28. sept 2024