

Hugbúnaðarsérfræðingur - Salesforce
Hefur þú metnað og áhuga til koma að stafrænni umbyltingu og sjálfvirknivæðingu hjá einu stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins?
Við erum í stórri og veigamikilli Salesforce vegferð þar sem mörg spennandi tækifæri eru framundan. Við leitum að einstaklingi sem hefur haldbæra reynslu af hugbúnaðarþróun í Salesforce ásamt reynslu af innleiðingum á hugbúnaðinum. Viðkomandi yrði leiðandi í ráðgjafa og forritunarhlutverki í samvinnu við aðra lykilstarfsmenn. Við hjá Sýn leggjum áherslu á öfluga liðsheild og teymisvinnu skv. Agile hugmyndafræðinni
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í framþróun lausna fyrir stafræna sölu og þjónustu með áherslu á framenda
- Vera tæknilegur leiðtogi sem getur tekið ákvarðanir varðandi tæknilega útfærslu og veitt reynsluminni forriturum stuðning.
- Þróa lausnir í Salesforce
- Veita sérfræðiþekkingu á Salesforce umhverfinu þá helst Sales Cloud, Service Cloud, Communication Cloud, Apex Classes/Triggers og SOQL
- Almenn hugbúnaðarþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Sterk tæknileg þekking á Salesforce og/eða þátttaka í stærri innleiðingum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður og vandvirkni
- Þekking á APEX,LWC,HTML, CSS og JavaScript
- Þekking á REST, API og SQL
- Þekking á Git, CI/CD og SCRUM kostur
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk. Nánari upplýsingar veitir Kolbrún S. Hjartardóttir, mannauðsráðgjafi, kolbrunsh@vodafone.is, og Karen Sif Viktorsdóttir karensif@vodafone.is, Deildarstjóri Hugbúnaðarþróunar.
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.
Hver erum við?
Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og dótturfélagið Endor. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.











