Avis og Budget
Avis og Budget
Avis og Budget

Hugbúnaðarsérfræðingur

Alp hf., sem rekur Avis bílaleiguna á Íslandi, leitar að öflugum hugbúnaðarsérfræðingi til að taka við ábyrgð á hugbúnaðarþróun og tæknilegum innviðum félagsins.

Þetta er fjölbreytt og krefjandi staða þar sem viðkomandi er eini forritari félagsins og ber bæði ábyrgð á daglegri þróun kerfa og stefnumótun í tæknimálum. Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af sjálfstæðum vinnubrögðum, vill hafa áhrif á tæknistefnu félagsins og kann að forgangsraða verkefnum frá hugmynd til framkvæmdar.

Helstu verkefni og ábyrgð

•         Þróun, viðhald og rekstur á hugbúnaðarkerfum félagsins

•         Stefnumótun og forgangsröðun í tæknimálum í samráði við stjórnendur

•         Þróun og umsjón með bókunarkerfi og innri kerfum

•         Samþætting við ytri kerfi (Avis-kerfi, greiðslukerfi, bókhaldskerfi o.fl.)

•         Umsjón með tæknilegum innviðum, skýjaþjónustum og rekstraröryggi

•         Ábyrgð á upplýsingaöryggi og að persónuverndarkröfur (GDPR) séu uppfylltar

•         Samskipti og samstarf við utanaðkomandi forritara, ráðgjafa og þjónustuaðila

•         Tæknileg ráðgjöf til annarra deilda.

•         Áframhaldandi þróun á fjárhagsupplýsingakerfinu Business Central

Menntunar- og hæfniskröfur

•         Reynsla af hugbúnaðarþróun, helst í einhverri af eftirfarandi tækni: .NET / C#, Python eða JavaScript / TypeScript (React, Node.js)

•         Reynsla af vinnu með gagnagrunnum (SQL) og samþættingu kerfa

•         Reynsla á Microsoft 365, Power Automate, Power PI og Power Apps

•         Þekking á skýjaþjónustum (AWS, Azure eða sambærilegt)

•         Skilningur á upplýsingaöryggi og persónuvernd

•         Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni

•         Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna þvert á deildir

•         Gott vald á íslensku og ensku

Fríðindi í starfi

•         Fjölbreytt og krefjandi starf hjá rótgrónu félagi

•         Mikið sjálfstæði og tækifæri til að móta tæknistefnu félagsins

•         Gott vinnuumhverfi í Holtagörðum

•         Tækifæri til faglegrar þróunar

•         Náið samstarf við stjórnendur og þvert á deildir

Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júní 2026
Laun (á mánuði)750.000 - 950.000 kr.
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vatnagarðar 38, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BakendaforritunPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.HugbúnaðarprófanirPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Viðskiptagreind
Starfsgreinar
Starfsmerkingar