
Orkuveitan
Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.
Hjá Orkuveitunni leggjum við áherslu á að vinna með fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem býr yfir eða hefur vilja til að byggja upp þá hæfni sem hentar verkefnum hverju sinni. Við tökum forystu í verkefnum og hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi.
Við tryggjum góðan aðbúnað, sveigjanleika og sköpum starfsfólki aðstæður til að samræma kröfur vinnu og annarra þátta lífsins. Við nýtum okkur tækni í starfsumhverfi og starfsfólk nýtur jafnréttis.
Saman erum við lipur, lærdómsfús og óhrædd að prófa nýja hluti til að skapa eftirtektarverðar lausnir og ná hámarks árangri fyrir viðskiptavini og samfélagið.

Hugbúnaðararkitekt – Solution architect
Við leitum að lausnamiðuðum og sjálfstæðum einstaklingi með brennandi áhuga og þekkingu á högun hugbúnaðar. Sem hluti af okkar öfluga teymi hugbúnaðararkitekta hjá Stafrænni Umbreytingu hjá Orkuveitunni, muntu vinna með sérfræðingum sem deila sama áhuga og þú á að skapa og þróa nýstárlegar kerfislausnir.
Um fjölbreytt starf er að ræða en helstu verkefni eru að hanna og þróa kerfislausnir Orkuveitunnar og dótturfélaga, samþætting lausna, að vera leiðandi í hönnun á nýjum lausnum ásamt samvinnu með ytri og innri aðilum sem koma að hugbúnaðargerð Orkuveitunnar.
Ef þú er skapandi, býrð yfir skipulagshæfni og vilt þróast í starfi þá viljum við heyra frá þér.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af forritun í Net, C#, CSS og JavaScript
- Reynsla af því að byggja upp stærri hugbúnaðarlausnir og viðhalda þeim í rekstri
- Reynsla af Azure DevOps er kostur
- Þekking á Microsoft SQL gagnagrunnum
- Reynsla af forritun í Microsoft lausnum er kostur
- Þekking á skýjaþjónustum er kostur
- Frumkvæði og hæfni til að starfa sjálfstætt
- Góð samskiptafærni og hæfni í að túlka kröfur og væntingar hagaðila
- Leiðtogahæfni með færni til að sjá heildarmyndina, stuðla að lausnamiðuðum vinnubrögðum og tryggja framvindu verkefna
- Háskólapróf eða sambærileg menntun/reynsla sem nýtist í starfi
Auglýsing birt3. september 2024
Umsóknarfrestur22. september 2024
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Power BI & Power Automate sérfræðingur
Iceland Hotel Collection by Berjaya

Kerfisstjóri
Norðurál

Senior QA Analyst
CCP Games

Infrastructure Engineer
CCP Games

Kerfisstjóri
Landsnet hf.

Sérfræðingur í iðntölvustýringum
Héðinn

Starfsmaður í upplýsingatæknideild
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Specialist LS - Central
Iceland Hotel Collection by Berjaya

Hugbúnaðarsérfræðingur
KAPP ehf

Verkefnastjóri í stafrænni þróun
Öryggismiðstöðin

Software Specialist
Rapyd Europe hf.

Test Engineer
Pollard Digital Solutions