

Hressir úthringjarar óskast í sjálfboðastarf!
Lætur þú mannréttindi og skaðaminnkun þig varða? ✊
Við í Matthildi – samtökum um skaðaminnkun erum að leita að hressum og jákvæðum sjálfboðaliðum í úthringingarstarf til að ganga til liðs við glaðvært fjáröflunarteymi okkar.
Við stöndum frammi fyrir spennandi verkefnum og viljum fá með okkur fólk sem vill leggja sitt af mörkum til að styðja mannréttindi fólks sem notar vímuefni. Markmið úthringinganna er öflun mánaðarlegra styrktaraðila og kynning starfseminnar. Takmarkaðir opinberir styrkir hafa staðið samtökunum til boða í ár og án annara fjárveitinga mun eftirfarandi þjónusta samtakanna leggjast af undir lok árs:
- Reykur
- Nalaxone í fangelsum
- Matthildarteymið
Upphafsátak:
Við leitum að sjálfboðaliðum sem geta tekið þátt á eftirfarandi dagsetningum og er sérstaklega litið til þeirra sem komast á öll úthringikvöldin.
-
6. október kl. 17:30 – 20:00
-
8. október kl. 17:30 – 20:00
- 13. október kl. 17:30 - 20:00
Í framhaldinu:
Erum við að byggja upp úthringingateymi með reglulegum úthringikvöldum á miðvikudögum kl. 17:30–20:00.
Sjálfboðaliðar sem koma til greina verða boðin á létta kynningu á starfsemi samtakanna og fræðslu um skaðaminnkun. Auk þess fá nýliðar þjálfun í úthringingum til undirbúnings fyrir starfið. Í boði verða léttar veitingar á meðan vinnnutíma stendur.
Frekari fyrirspurnir og spurningar um starfið beinist á [email protected]
-
Úthringingar til einstaklinga sem hafa sýnt málstaðnum áhuga.
-
Kynning starfsemi Matthildarsamtakanna.
-
Útskýring mikilvægi mánaðarlegra styrktaraðila og hvernig stuðningur þeirra skiptir máli fyrir mannréttindi og skaðaminnkun.
-
Svörun almennra spurninga um samtökin.
- Góð almenn menntun
- Reynsla af úthringingum kostur
- Reynsla af sölustarfi kostur
- Góð samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á skaðaminnkun og mannréttindum
Fræðsla og kynning á starfsemi samtakanna og skaðaminnkun.
