
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli er við Norðurhóla 1 á Selfossi. Hann tók til starfa í ágúst 2004 með 1.- 4. bekk en er nú heildstæður skóli með bekkjardeildir frá 1.- 10. bekk. Sérdeild Suðurlands er deild innan Sunnulækjarskóla og í daglegu tali nefnd Setrið.
Sunnulækjarskóli er skóli sem lærir. Skólinn er samfélag þar sem allir vinna saman að því að læra, þroskast og taka framförum. Við viljum byggja upp sterkt lærdómssamfélag nemenda og starfsmanna og leggjum áherslu á metnaðarfullt skólastarf þar sem virðing og traust ríkir. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er mjög mikilvæg.
Nemendur eru settir í öndvegi og við viljum rækta með þeim áræði, þrek og þor til að takast á við þau fjölmörgu og fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra á lífsleiðinni. Við viljum að nemendum og starfsfólki líði vel í skólanum og gangi glaðir til starfa.
Í Sunnulækjarskóla vinna allir í teymum. Þannig nýtum við styrkleika og margbreytileika hópsins betur og margar hendur vinna létt verk. Umsjónarkennarar innan árgangs mynda kennarateymi sem og faggreinakennarar, list- og verkgreinakennarar, íþróttakennarar og sérkennarar ásamt þroska- og iðjuþjálfum. Kennarateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Einkunnarorð skólans eru GLEÐI - VINÁTTA - FRELSI.

Hönnunar-smíðakennari
Auglýst er 100% staða hönnunar- og smíðakennara frá 1. ágúst 2023
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
Umsjón með daglegu skólastarfi og viðkomandi nemendahópum
Samskipti á vegum skólans og við foreldra/forráðamenn
Fylgist með velferð nemenda og hlúir að þeim í samstarfi við fagaðila eftir þörfum
Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf grunnskólakennara
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Hæfni og áhugi á skólastarfi
Góð færni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Starfstegund
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSamvinnaSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu vera memm?
Heilsuleikskólinn Kór
Leikskólakennarar/Leiðbeinendur Óskast
Leikskólinn Krílakot
Viltu vaxa í fallegu umhverfi? Kennarar og leiðbeinendur
Ævintýraborg við Nauthólsveg
Viltu vaxa og dafna með okkur? Deildarstjórastaða
Ævintýraborg við Nauthólsveg
Starfsfólk óskast í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli
Leikskólakennari / leiðbeinandi
Ungbarnaleikskólinn Bríetartún
Deildarstjóri - Leikskólinn Lækjarbrekku
Sveitarfélagið Strandabyggð
Leikur og málörvun - HOLT
Leikskólinn Holt
Sæborg stuðningskennsla
Leikskólinn Sæborg
Laus staða í Marbakka
Marbakki
50% staða eftir hádegi í Núp
Núpur
Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
GarðabærMá bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.