Flügger Litir
Flügger Litir
Flügger Litir

Hlutastarf & sumarstarf - Flügger Stórhöfða

Flügger litir óskar eftir að ráða starfsmenn í hlutastarf í verslun okkar að Stórhöfða 44, 110 Reykjavík.

Vöktum verður skipt á milli hlutastarfsmanna eins og hentar samkvæmt stundatöflu. Vaktir eru í boði á eftirfarandi tímum:

  • Mánudagar, þriðjudagar og miðvikudagar kl.15-18
  • Fimmtudaga og föstudaga kl.14-18
  • Laugardaga og sunnudaga kl.10-19 eða kl.12-19

Tilvalið fyrir aðila sem eru í námi.

Við leitum að aðilum sem finnst spennandi að aðstoða viðskiptavini við sín málningarverkefni. Hefur þú áhuga á innanhússhönnun, málningu, litum og verkferlum? Viltu að þínir viðskiptavinir séu syngjandi kátir eftir að hafa fengið aðstoð og ráðgjöf frá þér?

Við hjá Flügger erum þroskað og sterkt fyrirtæki sem er á fullu að nútímavæða sig. Verkefnin eru fjölbreytt og alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá okkur. Við erum samhent teymi sem þrífst á því að eiga góða vinnudaga saman og tryggja okkar viðskiptavinum frábæra þjónustu þegar þeir ætla að taka í gegn hjá sér.

Í starfinu felst meðal annars afgreiðsla, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina, auk umhyggju fyrir útliti verslunarinnar. Við leitum eftir ábyrgum, traustum og þjónustuliprum einstaklingum með mikla hæfni í samskiptum.

Við óskum eftir að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri og hvetjum við öll kyn til að sækja um.

Við óskum eftir því að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst og búi yfir góðri íslenskukunnáttu. Allar umsóknir þurfa að berast í gegnum Alfreð.

Nánari upplýsingar veitir Mariana verslunarstjóri í gegnum netfangið mabi@flugger.com.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala
  • Þjónusta
  • Ráðgjöf
  • Áfylling
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Afgreiðsla
  • Sölumennska
  • Vöruframsetning
  • Þjónustulund
Auglýsing birt11. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaGrunnfærni
Staðsetning
Stórhöfði 44, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar