
Hlutastarf í Gryfjunni
Við í Gryfjunni leitum að hressum, jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi til að bætast við hópinn okkar. Gryfjan er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfrækt frá árinu 2015. Við leggjum mikla áherslu á góða þjónustu og góðann starfsanda.
Um starfið:
Starfið felst meðal annars í afgreiðslu, ráðgjöf til viðskiptavina, vörumóttöku, frágangur pantana og almennum verkefnum í verslun. Við leitum að einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti, sýnir frumkvæði í starfi og er áreiðanleg/ur.
Um er að ræða hlutastarf þar sem byrjað er á föstum vöktum samhliða þjálfun. Einnig þarf viðkomandi að geta tekið aukavaktir þegar þörf er á, til dæmis vegna fríia og annarra fjarvista. Möguleiki er á fleiri vöktum og auknu starfshlutfalli ef vel gengur.
Mikilvægt er að geta unnið ein/einn á vakt og að geta unnið bæði í Skeifunni og Veltusundi 101 Reykjavík
Við leitum af þér ef þú:
- Ert áreiðanleg/ur, jákvæð/ur og Þjónustulunduð/aður.
- Átt auðvelt með samskipti og getur unnið sjálfstætt
- Getur hafið störf fljótlega
Athugið lágmarksaldur er 20 ára og nauðsynlegt er að hafa góð tök á íslensku og ensku.
nánari upplýsingar um starfið veitir Erna, [email protected]
Starfið felst meðal annars í afgreiðslu, ráðgjöf til viðskiptavina, vörumóttöku, frágangur pantana og almennum verkefnum í verslun
Inneign og afsláttur af vörum
Íslenska
Enska










