Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Hjúkrunarfræðingur óskast í heimahjúkrun á heilsugæslu HSU Selfossi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi til að ganga til liðs við öflugt teymi heimahjúkrunar á Heilsugæslu HSU á Selfossi.Ef þú vilt vinna fjölbreytt og gefandi starf þar sem samvinna og fagmennska eru í forgrunni, er þetta starfið fyrir þig!

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felst í heimahjúkrun á þjónustusvæði heilsugæslu HSU.

  • Taka þátt í fjölbreyttum verkefnum heilsugæsluhjúkrunar eftir þörfum.

  • Starfið er fjölbreytt með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.

  • Samstarf við aðra faghópa og þátttaka í teymisvinnu.

  • Stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur með virðingu og umhyggju.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.

  • Starfsleyfi landlæknis.

  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.

Auglýsing birt17. desember 2025
Umsóknarfrestur29. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar