

Hjúkrunarfræðingur óskast á hjúkrunarheimilið Móberg
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
- Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
- Um er að ræða vaktavinnu sem felur í sér morgun- og kvöldvaktir, auk möguleika á bakvöktum ef það hentar. Helgarvinna er samkvæmt samkomulagi við deildarstjóra.
- Heimilið hefur fimm almennar hjúkrunareiningar þar sem 12 einstaklingar búa á hverri einingu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
- Starfsleyfi landlæknis.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf.
Auglýsing birt6. maí 2025
Umsóknarfrestur30. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi
Landspítali

Teymisstjóri í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur við ónæmisfræðideild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur
Læknastöðin Orkuhúsinu

Hjúkrunarfræðingur í ung- og smábarnavernd
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heilbrigðisstarfsmaður óskast í fjölbreytt starf
Okkar heimur

Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali

Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali

Heilbrigðisstarfsmaður á Upplýsingatæknideild
Sjúkrahúsið á Akureyri

Hjúkrunarfræðingur - Bráðamóttaka Barnaspítala Hringsins
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu