Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Hjúkrunarfræðingur í vaktavinnu

Við leitum að hjúkrunarfræðingi í 70 - 100% starf á hjúkrunardeild okkar. Deildin er 14 rúma legudeild og unnið er á þrískiptum vöktum og einstaka helgar.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á Reykjalundi starfar hópur framúrskarandi hjúkrunarfræðinga á átta þverfaglegum teymum þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, íþróttafræðingar, talmeinafræðingar, sjúkraliðar og læknar. Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug. Vinnuvikan fyrir fullt starf er 36 stundir.

Hæfnikröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi gefið út af embætti landlæknis.
  • Þekking af endurhæfingarhjúkrun er kostur.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.

Laun byggja á kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja velferðarþjónustu auk stofnanasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Ólöf Árnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í gegnum netfangið [email protected] og Guðbjörg Gunnardóttir mannauðsstjóri í gegnum netfangið [email protected]

Auglýsing birt7. maí 2025
Umsóknarfrestur21. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Metnaður
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar