
Grýtubakkahreppur
Grýtubakkahreppur er um 400 manna sveitarfélag við austanverðan Eyjafjörð. Hreppurinn rekur m.a. grunnskóla, leikskóla, slökkvilið, áhaldahús, veitur og hjúkrunarheimili.

Hjúkrunarfræðingur / hjúkrunarnemi – sumarafleysing á Grenilundi, Grenivík
Grenilundur á Grenivík óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarnema í sumarafleysingu.
Starfshlutfall getur verið allt frá 40% til 100% eða samkvæmt samkomulagi og hentar starfið vel þeim sem vilja starfa í litlu og persónulegu umhverfi með fjölbreyttum verkefnum.
Grenilundur er heimilislegt hjúkrunarheimili fyrir 10 íbúa, þar sem rík áhersla er á jákvæðan starfsanda, góða samvinnu og hlýlegt umhverfi. Nýir starfsmenn fá góða aðlögun og stuðning frá reyndu starfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn hjúkrun á sviði öldrunar í nánu samstarfi við lítið og samheldið teymi.
- Stuðningur við íbúa og fjölskyldur þeirra með fagmennsku, virðingu og umhyggju að leiðarljósi.
- Þátttaka í daglegri umönnun og skipulagi þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
- Starfsleyfi landlæknis (ef við á).
- Staðfesting á námi fyrir hjúkrunarnema.
- Reynsla af hjúkrun er kostur.
- Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áreiðanleiki og frumkvæði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Aðallega dagvaktir á virkum dögum, ásamt bakvöktum.
- Möguleiki á sveigjanlegu eða breytilegu starfshlutfalli.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Túngata 2, 610 Grenivík
Starfstegund
Hæfni
AðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaHjúkrunarfræðingurHreint sakavottorðMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísiSveigjanleikiTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur / ljósmóðir í ung- og smábarnavernd
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali