Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efra-Breiðholti
Vilt þú vinna í fjölskylduvænu umhverfi og vera hluti af öflugum hópi starfsmanna?
Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 50-80% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember eða eftir nánara samkomulagi.
Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um. Heilsugæslan í Efra-Breiðholti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið er heilsuvernd eldra fólks og heilsueflandi móttaka.
Hjúkrunarfræðingar í heilsuvernd eldra fólks greina m.a. áhættuþætti og veita fræðslu um aldurstengda þætti sem snerta heilsu og líðan.
Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðiskerfið og þjónustuúrræði. Mikil teymisvinna er á milli fagstétta.
Við erum með móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri, sinnum bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem eru ekki bráð s.s. sárameðferð og heilsueflandi móttöku. Um er að ræða skemmtilegt starf í fjölmenningarlegu samfélagi.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Þekking og áhugi á heilsueflingu og forvarnarstarfi
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta