Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Snorrabraut
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum við Snorrabraut. Við bjóðum jafn velkominn í okkar góða hóp nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing sem og hjúkrunarfræðing með reynslu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma. Einnig eru bakvaktir, um helgar og á rauðum dögum, sem skiptast niður á starfsmannahópinn. Starfshlutfall getur verið 67-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti. Í Blóðbankanum starfa um 55 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, líffræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofufólk og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í .