Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild
Við óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi. Unnið er í vaktavinnu sem hefur marga kosti umfram dagvinnu. Starfshlutfall er samkomulag og ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður og spennandi námstækifæri framundan. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í .