

Hjúkrunarfræðingur á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 Fossvogi
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 í Fossvogi.
Við bjóðum nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing jafnt sem reynslubolta velkominn í okkar hóp. Hjá okkur ríkir einstaklega góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Áhersla lögð á framþróun og símenntun starfsfólks.. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Deildin er 18 rúma bráðadeild og þar er rekin þriggja sérgreina skurðdeild. Þar er sjúklingum sinnt eftir háls-, nef og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir, æðaskurðaðgerðir og þar er einnig sérhæfð sáradeild. Deildin er eina brunadeildin á landinu og sinnir öllum alvarlegri brunaslysum. Hjúkrunarfræðingar deildarinnar hafa sérhæft sig í sárum og sárameðferð. Sjúklingahópurinn er mjög fjölbreyttur og enginn dagur eins.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í .
Upphaf starfs og starfshlutfall er samkomlag, unnið er í vaktavinnu. Ráðið er í starfið frá 1. júlí n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
















































