Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingar Sumarstarf

Heimahjúkrun í Norðurmistöð leitar að öflugum hjúkrunarfræðingum til starfa sumarið 2025. Starfshlutfall er samkomulag.

Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings og endurhæfngarteymis. Reykjavíkurborg hefur verið leiðandi í samþættri þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings. Markmið þjónustunnar er að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.

Mikil þróunarvinna er á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Innleiðingu velferðartækni, ásamt fjölbreyttum og sérhæfðum verkefnum sem tengjast þverfaglegu og hreyfanlegu öldrunarteymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar.
  • Hjúkrunarþjónusta í heimahúsi í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og aðrar heilbrigðsstéttir.
  • Framkvæmd og eftirfylgni hjúkrunaráætlana og skráning í Sögu.
  • Virk þátttaka í teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu Sögu og RAI mælitækjum æskileg.
  • Góð samskipta-og skipulagshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Ökuréttindi
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
  • Íslenskukunnátta C1 í samræmi við evrópska tungumálaramma
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika
  • Mötuneyti
Auglýsing birt17. janúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar