Hjúkrunardeildarstjóri hjartagáttar
Leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi hjartagáttar og byggja upp sterka liðsheild. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Á hjartagátt Landspítala starfar um 30 manna samheldinn hópur sem veitir þjónustu við hjartasjúklinga sem þurfa að undirgangast inngrip eins og hjartaþræðingar, gangráðsísetningar, brennsluaðgerðir, rafvendingar og fleira.
Hjartagáttinni tilheyra fjórar sérhæfðar þverfaglegar göngudeildir. Hjartagátt er dag- og göngudeild og er opin 7:30 - 20:00 alla virka daga. Lögð er áhersla á teymisvinnu með það að markmiði að skapa jákvæðan og hvetjandi starfsanda þar sem starfsmenn fá tækifæri til að taka þátt í umbótarvinnu samhliða daglegum störfum. Við leggjum sérstaka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart skjólstæðingum og samstarfsfólki.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi sem hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur hjarta- og augnþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Hæfni til að leiða teymi
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði
Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk hjarta- og augnþjónustu
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi hjarta- og augnþjónustu
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan hjarta- og augnþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala