Hjúkrunardeildarstjóri endurhæfingardeildar Grensási
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi endurhæfingardeildar Grensási og byggja upp sterka liðsheild. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað starfsfólk.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi og sinna einstaklingum sem þurfa á endurhæfingu að halda eftir alvarleg slys eða veikindi. Unnið er eftir hugmyndafræði endurhæfingarhjúkrunar þar sem lögð er áhersla á að veita heildræna þverfaglega þjónustu sem tekur mið af þörfum einstaklingsins og fjölskyldu hans. Endurhæfing felur m.a. í sér aðlögun að breyttum aðstæðum og er sameiginlegt verkefni milli einstaklings sem í hlut á, þeirra sem standa honum næst og þverfaglegs teymis. Markmið endurhæfingar er að gera einstaklinga eins sjálfbjarga líkamlega, andlega og félagslega og geta leyfir.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1.mars 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur endurhæfingarþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Hæfni til að leiða teymi
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk endurhæfingarþjónustu
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala