Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri á öryggisgeðdeild

Laus er til umsóknar tímabundin staða hjúkrunardeildarstjóra á Öryggisgeðdeild. Starfið er auglýst sem tímabundið til 2 ára. Leitað er að kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða krefjandi þjónustu við sjúklinga og aðstandendur. Viðkomandi þarf að hafa hæfni til að leiða þverfaglega teymisvinnu og efla notendamiðaða nálgun, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk.

Öryggisgeðdeild er hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu á Landspítala. Öryggisgeðdeildin er átta rúma legudeild sem sinnir sérhæfðri meðferð og endurhæfingu sjúklinga með alvarlegan og þungan geðrænan vanda. Meðferðarnálgun deildarinnar er fjölþætt og ræðst af þörfum og getu hvers og eins sjúklings. Meginmarkmið meðferðarinnar er að sjúklingar fái þá meðferð og endurhæfingu sem er nauðsynleg til þess að þeir geti komist aftur út í samfélagið með góðum lífsgæðum. Miklar umbætur standa nú yfir í réttar- og öryggisgeðþjónustunni bæði á húsnæði og starfsemi og mun hjúkrunardeildarstjóri taka virkan þátt í þeim. Á vormánuðum flyst öryggisgeðdeildin á milli hæða á Kleppi á nýuppgerða deild sem mætir að mörgu leyti nútíma kröfum geðþjónustu.

Hjúkrunardeildarstjóri er í forystu fyrir starfsemi öryggisgeðdeildar ásamt yfirlækni réttar- og öryggisgeðþjónustu og stýrir daglegum rekstri. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra, yfirlækni deildar, aðra deildarstjóra í réttar- og öryggisgeðþjónustu og aðra stjórnendur þeirra fagstétta sem starfa á einingunni. Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi, til tveggja ára. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í geðþjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
Reynsla af þjónustu við sjúklinga með alvarlegan geðvanda og fjölþættar þjónustuþarfir
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og lausnamiðun
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfsemi, flæði og gæðum hjúkrunarþjónustu; setur markmið um umbætur og öryggi og tryggir eftirfylgni; stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og framkvæmdastjóra
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan geðþjónustu
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan geðþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur27. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kleppsgarðar, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (50)
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðadagdeild lyflækninga
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á endurhæfingardeild Grensás
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir sérnáms, framhaldsmenntun lækna
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Hjúkrunarnemar sem lokið hafa 3. námsári
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Hjúkrunarnemar sem lokið hafa 2. námsári
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Umönnun á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á Heilbrigðisvísindabókasafni
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri á Dauðhreinsun
Landspítali
Landspítali
Læknir í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri/ hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Landspítali
Landspítali
Læknir -Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur á geislameðferðardeild
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á göngudeild augnsjúkdóma, Eiríksgötu 5
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði óskast á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Hlutastörf með námi í endurhæfingarþjónustu og/ eða sumarstörf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðalyflækningadeild og/ eða sumarstörf
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Landspítali
Landspítali
Lífeindafræðingur, náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Flutningaþjónusta
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Vöruhús
Landspítali
Landspítali
Lífeindafræðingur, náttúrufræðingur óskast á rannsóknakjarna
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Þvottahús
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Þjónustuver og móttökur
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Umönnunarstörf á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf á geislameðferðardeild
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á öldrunardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Talmeinafræðingur
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir geislameðferðar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í innlagnastjórn
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í nýburalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Starf á dag- og göngudeild augnlækninga
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári í geðþjónustu - hlutastörf með námi og/ eða sumarstörf
Landspítali
Landspítali
Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á framleiðslueiningu ísótópastofu
Landspítali
Landspítali
Nýútskrifaðir iðjuþjálfar
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi í spelkugerð og handarþjálfun
Landspítali