Hjúkrunardeildarstjóri á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi
Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun og rekstri til að leiða starfsemi bæklunarskurðdeildar í Fossvogi. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar, við aðra stjórnendur og samstarfsaðila.
Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um hjúkrunarfræðileg málefni deildarinnar. Stefnan er að veita fjölskyldumiðaða þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta.
Deildin er bráðadeild og sinnir bráðatilfellum er tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmissa aðgerða á stoðkerfi. s.s. eftir gerviliðaaðgerðir og hryggspengingar. Þar starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi og ríkir frábær starfsandi á deildinni sem einkennist af vinnugleði, metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur skurðlækningaþjónustu dag- og legudeilda. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2024.