Rent-A-Party
Rent-A-Party
Rent-A-Party

Helgarstarfsfólk óskast - Fullt starf í boði yfir sumarið

Rent a Party óskar eftir öflugu og jákvæðu starfsfólki til starfa um helgar með möguleika á fullu starfi yfir sumarið.

Starfið hentar vel fyrir fólk sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og vill vera hluti af skemmtilegu teymi.

Vinnutími er 9-16 um helgar en getur verið sveigjanlegur. Einnig eru oft í boði verkefni á kvöldin á virkum dögum og um helgar.

Við leitum að einstaklingum sem:

  • Eru áreiðanlegir og stundvísir

  • Hafa góða þjónustulund og jákvætt viðmót

  • Geta unnið sjálfstætt sem og í teymi

  • Eru líkamlega hraustir

Gott væri ef einstaklingurinn gæti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Uppsetning og frágangur á leigubúnaði

Undirbúa leigubúnað fyrir útleigur

Afhending og móttaka á búnaði

Almenn þjónusta við viðskiptavini

Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Bílpróf er nauðsynlegt og vilji til þess að læra á allan þann fjölbreytta búnað sem við bjóðum upp á. 

Fríðindi í starfi

Möguleiki á fullu starfi yfir sumarið

Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Laun (á mánuði)490.000 - 600.000 kr.
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Vesturvör 32B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Mac OSPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar