
Dyrabær
Dýrabær rekur sex verslanir, í Smáralind, Kringlu, Spöng, Keflavík og Akranesi auk vefverslunar. Við elskum dýr og allir sem vinna hjá okkur eiga dýr.
Dýrabær selur vörur sem eru unnar úr náttúrulegum hráefnum án aukaefna, svo sem rotvarnar- og litarefna. Við leggjum mikla áherslu á selja vörur sem viðhalda heilbrigði og vellíðan dýranna og höfum valið þær vörur af mikilli kostgæfni.

Helgarstarf - Dýrabær í Krossmóa, Reykjanesbæ
Við leitum að starfsmanni í afgreiðslustörf í Dýrabæ í Krossmóa, Reykjanesbæ.
Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.
Starfsstöð starfsmanns er í Dýrabæ, Krossmóa, Reykjanesbæ
Vinnutími er:
Annan hvern laugardag, 11:00 - 16:00 (eða alla laugardaga)
Möguleiki á afleysingum á virkum dögum ef þörf er á.
Vinsamlegast sendið kynningarbréf og ferilskrá með umsókninni.
Athugið að Dýrabær er reyklaus vinnustaður.
Við leitum að starfsmanni sem er dýravinur, hefur reynslu af afgreiðslustörfum, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður, sjálfstæður og metnaðarfullur í vinnubrögðum.
Góð íslensku kunnátta er skilyrði og mikill kostur að eiga dýr.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina
- Uppröðun í verslun, áfyllingar og verðmerkingar
- Halda verslunarrými snyrtilegu / þrif í verslun
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á dýravörum
- Rík þjónustulund
- Áreiðanleg vinnubrögð
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt20. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Krossmói 4, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
7 klst

Starfsmaður í afgreiðslu ( helgarstörf )
Lindabakarí
21 klst

Service Assistants
Costco Wholesale
1 d

Afgreiðsla í Verslun
Akkúrat slf.
1 d

Sölu og afgreiðslustarf í verslun
Strand49
2 d

Starf í Heilsuhúsinu Kringlunni - Ráðgjöf og þjónusta, framtíðarstarf
Heilsuhúsið
2 d

Þjónusta í apóteki - Bíldshöfði
Apótekarinn
2 d

Apótekarinn - Flakkari
Apótekarinn
2 d

Þjónusta í apóteki - Flakkari
Lyf og heilsa
2 d

Viltu verða djúsari? (Fullt starf )
Joe & the juice
2 d

Sölustarf í Herrafataverslun Stout XL-8XL
Stout herrafataverslun
2 d

Verslunarstörf í ELKO Lindum
ELKO
2 d

Þjónusta í apóteki - Mjódd
Apótekarinn
Má bjóða þér smákökur?
Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.