Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Heimilisfræðikennari - Skarðshlíðarskóli

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum heimilisfræðikennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk, í vetur eru um 440 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast heimilisfræði kennslu í 1. - 10. bekk
  • Sjá um innkaup fyrir kennsluna og umsjón með heimilisfræðistofu
  • Taka þátt í uppbyggingu á nýjum skóla í samvinnu við stjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar - og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Fagþekking á sviði heimilisfræði og heilsueflingar
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Ráðið er í stöðuna frá 1. janúar 2025

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 13.október 2024.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur13. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar