Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár - Skarðshlíðarskóli

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum heimilisfræðikennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk, í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast heimilisfræði kennslu í 1. - 10. bekk
  • Sjá um innkaup fyrir kennsluna og umsjón með heimilisfræðistofu
  • Taka þátt í uppbyggingu á nýjum skóla í samvinnu við stjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar - og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Fagþekking á sviði heimilisfræði og heilsueflingar
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 25.mars 2025.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt13. mars 2025
Umsóknarfrestur25. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (20)
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsfólk í gæslu hjá Byggðasafni - sumarstarf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náttúrufræði- og stærðfræðikennari á unglingastigi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skólastjóri - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur í fjárreiðudeild – Fjármálasvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
UT kennsluráðgjafi fyrir skólaárið 2025-2026 - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstörf fyrir ungmenni fædd 2007 og eldri
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður við félagsstarf eldri borgara - Hraunsel - 50% staða
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í miðdeild - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður óskast til starfa í Geitunga - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari fyrir næsta skólaár - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk í sumarafleysingu - Svöluás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skapandi sumarstörf
Hafnarfjarðarbær