
Knattspyrnufélagið Víkingur
Knattspyrnufélagið Víkingur var stofnað 21. apríl 1908 og er eitt elsta íþróttafélag landsins. Félagið er með starfsstöðvar í Víkinni og Safamýri.
Heilsuefling 60 ára og eldri hjá Víkingi
Knattspyrnufélagið Víkingur leitar að hæfum og metnaðarfullum þjálfara til að stýra heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í íþróttahúsi félagsins í Virkinu, Safamýri 26. Um er að ræða hlutastarf en kennt verður tvisvar í viku í u.þ.b. klukkutíma í senn.
Knattspyrnufélagið Víkingur var stofnað árið 1908 og er í hópi elstu og öflugustu íþróttafélaga landsins. Innan félagsins hafa kynslóðir alist upp í gegnum starf sem byggir á virðingu, fagmennsku og góðum árangri. Þjálfari 60 ára og eldri hjá Víkingi mun stýra hópi iðkenda í heilsueflingu sem mun hafa það að markmiði að viðhalda styrk, þoli og liðleika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra og setja upp reglulegar æfingar í heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri
- Samskipti við iðkendur
- Taka þátt í markaðsstarfi fyrir heilsueflingu á vegum Víkings
- Vinna í góðu samstarfi við skrifstofu Víkings og þá sérstaklega Íþróttastjóra- og íþróttafulltrúa félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af kennslu og/eða þjálfun 60 ára og eldri er mikill kostur
- Íþróttafræði- og/eða þjálfunarmenntun er mikill kostur
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og áhugi á skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Lipurð og jákvæðni í samskiptum
- Hreint sakarvottorð
Auglýsing birt4. mars 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Safamýri 26, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Íþróttafræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla
Þjórsárskóli

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali