

Heilbrigðisgagnafræðingur eða ritari lækna við SAk
Ertu nákvæmur, skipulagður og langar að prófa eitthvað nýtt og takast á við spennandi áskoranir innan heilbrigðiskerfisins?
Sjúkrahúsið á Akureyri leitar að heilbrigðigagnafræðingi eða ritara lækna í 100% stöðu. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki, bjóðum upp á góða aðlögun og samheldið og öflugt starfsumhverfi.
Komdu og vertu hluti af öflugu teymi á Sjúkrahúsinu á Akureyri!
Hvað gera heilbrigðisgagnafræðingar á SAk? Kynntu þér málið hér
-
Meðhöndlun og skráning hvers konar læknisfræðilegra skýrslna og heilbrigðisgagna í samræmi við gildandi lög, reglur, kröfur og gæðaviðmið
-
Dagleg vinnsla sjúkraskrárupplýsinga í samræmi við gildandi lög, reglur, kröfur og gæðaviðmið
-
Gagnavinnsla, umsýsla og varðveisla sjúkraskráa og annarra skjala
-
Tímabókanir og milliganga sjúklinga og annars heilbrigðisstarfsfólks í sambandi við meðferð sjúklinga
-
Virk þátttaka í stefnumótun rafrænna sjúkraskráa
-
Kennsla og þjálfun annarra heilbrigðisstétta í notkun rafrænna sjúkraskrárkerfa
-
Önnur verkefni í samráði við yfirmann
-
Ef heilbrigðisgagnafræðingur, þá er gilt íslenskt starfsleyfi skilyrði
-
Einnig kemur til greina að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði sem lokið hafa öllu nema starfsárinu, eða nema í heilbrigðisfræðum eða aðra með haldgóða menntun og/eða reynslu
-
Góð kunnátta í íslensku- og ensku
-
Góð tölvukunnátta
-
Frumkvæði, nákvæmni og fagleg vinnubrögð
-
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

