Ertu reynslumikill þjónustumiðaður stjórnandi?
Við leitum að framsýnni manneskju til að leiða Þjónusturáðgjöf Veitna og bætta upplifun viðskiptavina. Góð þjónusta skiptir okkur miklu máli – og þar viljum við sífellt bæta okkur.
Viðkomandi verður Deildarstjóri Þjónusturáðgjafar á þjónustusviði Veitna þar sem ríkir góður andi í fjölbreyttu og skemmtilegu starfsumhverfi. Þekking og áhugi á nútímalegum þjónustulausnum er mikilvæg.
Þeir eiginleikar sem við leitum eftir er góð samskiptahæfni því við leggjum áherslu á að vera í góðu samtali við viðskiptavini og samstarfsfólk. Reynsla í að leiða teymi til árangurs þarf að vera umtalsverð. Fyrst og fremst leitum við að manneskju sem hugsar í snjöllum lausnum, sýnir frumkvæði, er umbótasinnuð og hefur ástríðu fyrir að skapa virði fyrir viðskiptavini.
Helstu viðfangsefni
Helstu viðfangsefni eru að taka þátt í að móta stefnu þjónustunnar og skilgreina og koma í framkvæmd aðgerðum sem stuðla að enn betri upplifun viðskiptavina. Viðkomandi mun leiða teymi sem hefur það meginverkefni að veita framúrskarandi þjónustu með því að leysa erindi á kvikan hátt og veita bæði forvirka upplýsingagjöf og persónulega ráðgjöf.
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Þjónustu hjá Veitum, brynja.ragnarsdottir@veitur.is.