
Stilling
Stilling hf. var stofnuð 17. oktober 1960 sem sérhæft hemlaverkstæði. Stofnendur ásamt Bjarna Júlíussyni voru Þórður Júlíusson verkfræðingur sem átti upphaflega hugmynd að fyrirtækinu, Magnús Baldvinsson kenndur við í MEBA, Óskar Ólafsson vélstjóri og Benedikt Magnússyni kenndur við BM Vallá. Í dag er fyrirtækið leiðandi í sölu á varahlutum og aukahlutum í bíla. Stilling rekur fimm öflugar verslanir víðsvegar um landið en einnig er fyrirtækið með sérstakan gagnagrunn sem verslanir og bílaumboð geta pantað úr á heimasíðu Stillingar hf.
Stilling er eitt elsta varahlutafyrirtæki á Íslandi í dag.
Stilling er rótgróið fjölskyldufyrirtæki og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu.
Stilling kappkostar að veita viðskiptavinum sínum um land allt vandaða og góða þjónustu. Fyrirtækið er með verslanir í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og á Akureyri. Þá er hægt að panta vörur úr gagnagrunni okkar af heimasíðunni Partanet.is Gagnagrunnurinn inniheldur vörur frá yfir 400 framleiðendum sem gerir viðskiptavinum kleift að finna réttan varahlut á auðveldan hátt. Pöntun á vöru er einstaklega auðveld, viðskiptavinurinn slær inn skráningarúmer bifreiðarinnar og finnur þá gagnagrunnurinn þann varahlut sem passar fullkomlega.

Hefur þú áhuga á bílum? Sumarstarf
Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi í teymið okkar í varahlutverslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Vinnutími er frá kl 08:00 til 17:00 og eða 10:00- 18:00.
Um sumarstarf er að ræða
Hvetjum öll kyn til að sækja um
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og aðstoð í verslun og vörumóttöku.
- Móttöka og frágangur á vörusendinga.
- Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð tölvukunnátta.
- Gott vald á íslenskri tungu.
- Þekking og/eða áhugi á bílum
- Reynsla af afgreiðslu á varahlutum eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
- Æskilegt að viðkomandi hafi bílpróf.
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt10. mars 2025
Umsóknarfrestur27. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Bæjarhraun 6, 220 Hafnarfjörður
Klettháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunFljót/ur að læraJákvæðniMannleg samskiptiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Gestgjafi Mercedes-Benz
Bílaumboðið Askja

Sumarstarf á Selfossi
Frumherji hf

Sumarstarf í Sundhöll Seyðisfjarðar
Sundhöll Seyðisfjarðar

Sumarstarf í Íþróttamiðstöðinni á Seyðisfirði
Íþróttamiðstöðin Seyðisfirði

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Vélvirki/Stálsmiður óskast
Hagverk ehf.

Vélvirki
Alkul ehf

Lagerfulltrúi í vöruhús
Brimborg

Þjónusturáðgjafi í þjónustuveri
ELKO

Afgreiðsla á húsbílaleigu
Geysir Motorhome

Afgreiðslufulltrúi / Customer service
Happy Campers

Starfsmaður á verkstæði AVIS í Reykjanesbæ
Avis og Budget