Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands

Háskólakennari í gagnvirkri stafrænni list og hönnun við LHÍ

Laust er til umsóknar starf háskólakennara í gagnvirkri stafrænni list og hönnun við Listaháskóla Íslands. Starfshlutfall er 50% eða hærra, eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða nýja námsleið á bakkalárstigi í gagnvirkri stafrænni list og hönnun (e. Interactive Digital Art & Design), sem stofnuð er í samstarfi Listaháskólans og Háskólans í Reykjavík. Þetta er einstakt samstarf þar sem ný hugsun og nýir listrænir tjáningarmöguleikar búa nemendur undir hlutverk framtíðarleiðtoga í síbreytilegu umhverfi lista og tækni.

Í starfinu felst vinna við stofnun námsleiðarinnar og síðar kennsla, umsjón og rannsóknir. Námið verður ætlað þeim sem vilja þróa hagnýta færni á sviði stafrænnar (list)sköpunar og hönnunar, skapandi forritunar, miðlunar og tölvulistar í hreyfimyndagerð.

Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er unnið í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf sem eru í gildi hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða á sviði stafrænnar gagnvirkrar hönnunar og/eða stafrænnar gagnvirkrar listsköpunar
  • Starfsreynsla á sviði hönnunar eða listsköpunar
  • Kennslureynsla
  • Reynsla af rannsóknum á sviði hönnunar eða lista er kostur
  • Afbragðs miðlunar- og samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni og áreiðanleiki
  • Gott vald á töluðu og rituðu máli 

Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Doktorsgráða er kostur. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. Að loknu viðtalsferli verður hæfi valinna umsækjenda metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur – umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar við gerð umsóknar.  

Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.FræðigreinarPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HreyfihönnunPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.KvikmyndagerðPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.Vöruhönnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar