
Grund hjúkrunarheimili
Grund hjúkrunarheimili var stofnað árið 1922 og því elsta starfandi hjúkrunarheimili á Íslandi. Grund hjúkrunarheimili er hluti af Grundarheimilunum en þar starfar stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Markmið Grundarheimilanna er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Hársnyrtir óskast
Grund hjúkrunarheimili óskar eftir sjálfstætt starfandi hársnyrti á hársnyrtistofu heimilisins, greidd er hagstæð leiga til heimilisins fyrir aðstöðuna.
Um er að ræða almennt hársnyrtistarf með sveigjanlegum vinnutíma í lifandi og skemmtilegu umhverfi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Grund er rúmlega 170 manna hjúkrunarheimili, staðsett á Hringbraut í Reykjavík.
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum og sjúkum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir:
Mannauðsdeild Grundarheimilanna.
Auglýsing birt18. júlí 2023
Umsóknarfrestur31. júlí 2023
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hringbraut 50, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HárgreiðslaHárlitunHársnyrtingHreint sakavottorðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulundÞolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar