
Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og vinnur að söfnun gagna, úrvinnslu og birtingu tölfræðilegra upplýsinga um landshagi Íslands og þjóðfélagsleg málefni.
Hjá Hagstofunni starfar öflugur hópur 125 starfsmanna. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt með sveigjanlegum vinnutíma og styttri vinnuviku. Boðið er upp á heilsustyrk fyrir þá sem hreyfa sig og samgöngustyrk fyrir þá sem nýta umhverfisvænan ferðamáta til vinnu. Virkt starfsmannafélag skipuleggur ýmsa viðburði fyrir starfsfólk.
Leiðarljós Hagstofunnar eru þjónusta – áreiðanleiki - framsækni.
Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á vef Hagstofunnar www.hagstofa.is

Spyrlastarf í úthringiveri
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða spyril til starfa til að hafa samband símleiðis við þátttakendur í rannsóknum og safna gögnum með viðtölum.
Ef þú:
- átt auðvelt með samskipti við fólk í gegnum síma og hefur ánægju af þeim,
- ert kurteis, þolinmóður, nákvæmur og ábyrgur einstaklingur,
- býrð að góðri almennri tölvukunnáttu,
- hefur gott vald á íslensku, ensku og jafnvel fleiri tungumálum,
- ert að minnsta kosti orðin/n 18 ára
- og hefur jafnvel reynslu af spyrla- eða úthringistörfum
máttu gjarnan senda okkur upplýsingar um bakgrunn og reynslu þína sem fyrst á [email protected]. Öllum fyrirspurnum má einnig beina á sama netfang.
Spyrlar vinna 2 – 4 daga í viku eftir föstu vaktskipulagi. Vinnutími er frá 17 til 22 mánudaga til fimmtudaga og frá 13 til 17 á sunnudögum. Greidd eru yfirvinnulaun, alls 3.054 kr. á tímann auk orlofs.
Auglýsing birt12. júlí 2019
Umsóknarfrestur27. júlí 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 21A, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
