Fjarðabyggðarhafnir
Fjarðabyggðarhafnir
Fjarðabyggðarhafnir

Hafnarvörður við Fjarðabyggðarhafnir

Fjarðabyggðarhafnir auglýsa laust til umsóknar starf hafnarvarðar. Um er að ræða fullt starf auk bakvakta. Starfið felur í sér hafnarvörslu, vigtun og þjónustu við viðskipavini hafnarinnar ásamt ýmsum öðrum verkum sem til falla á höfnunum. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki. Starfsvettvangur eru hafnir innan Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
    • Móttaka skipa og samskipti við viðskiptavini Fjarðabyggðarhafna
    • Eftirlit, umsjón og skráning á skipakomum, afla, vöruflutningum og öðru því sem um höfnina fer
    • Vigtun sjávarafla og skráning í aflaskráningarkerfi Fiskistofu
    • Almenn störf, viðhald, hreinsun og snyrting hafnarbakka, hafnarmannvirkja og hafnarsvæða
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Menntun sem nýtist í starfi
    • Hafnargæslumannsréttindi í hafnarvernd kostur
    • Vigtarréttindi kostur
    • Bílpróf
    • Vinnuvélaréttindi kostur
    • Góð íslenskukunnátta
    • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
    • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
    Auglýsing birt13. ágúst 2026
    Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Mjög góð
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Meðalhæfni
    Staðsetning
    Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
    Starfstegund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar