
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf
Herjólfur IV er rekin af opinbera hlutafélaginu Herjólfur ohf sem er í eigu Vestmannaeyjabæjar. Tekið var fagnandi á móti nýrri ferju við formlega athöfn þann 15.júní 2019 þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gaf Herjólfi IV formlega nafn sitt. Ferjan var smíðuð í Póllandi af skipasmíðastöðinni Chris S.A. Ferjan er rafvædd og stefnir fyrirtækið á að gera sitt besta í að leggja sitt af mörkum til umhverfisins. Fyrsta áætlunarferð Herjólfs IV var þann 25.júlí 2019. Ferjan er sérstaklega hönnuð með siglingar til Landeyjahafnar í huga og því er hún mikil samgöngubót fyrir alla, bæði Vestmannaeyjinga sem og gesti. Herjólfur ohf lítur á sig sem þjónustufyrirtæki, þar sem aðalmarkmiðið er að þjónusta eyjamenn ásamt því að reyna að kynna öðrum fyrir öllu því stórfenglega sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða.

Hafnarverðir / Afgreiðsla í Landeyjahöfn
Herjólfur ohf auglýsir laus störf í Landeyjahöfn. Starfið felur í sér hafnarvörslu samhliða þjónustustarfi á skrifstofu félagsins í höfninni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.maí nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Alma Ingólfsdóttir skrifstofustjóri félagsins á netfanginu [email protected]
Umsóknum skal skilað inn hér á Alfreð eða á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til og með 8.apríl nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast almenna starfsemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar
- Létt viðhald á mannvirkjum
- Umsjón með bílaplani.
- Almenn þjónusta við viðskiptavini sem snýr að bókunum.
- Símsvörun og tölvupóst samskipti við viðskiptavini.
- Almenn verkefni sem snúa að bókunarkerfinu.
- Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð mannleg samskipti
- Góð tölvukunnátta
- Jákvæðni
- Góð ensku og íslensku kunnátta.
- Vinna af heilindum fyrir Herjólf ohf.
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Landeyjahöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fagkaup óskar eftir vönum bílstjóra með meiraprófsréttindi
Fagkaup ehf

Þjónustufulltrúi / Car Rental Agent
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Þjónustufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Þjónustufulltrúi
Efling stéttarfélag

Lækning - móttökuritari
Lækning

Aðstoðarverslunarstjóri á Akureyri
Lífland ehf.

Sumarstarf N1 verslun Akureyri
N1

Gjaldkeri í reikningshaldi
Kópavogsbær

Newrest – Catering Delivery
NEWREST ICELAND ehf.

Reikningagerð og móttaka - Verkstæði Vélrásar
Vélrás

Starf í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar
Landhelgisgæsla Íslands

Hafnarvörður
Djúpavogshöfn