Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur

Grunnskólakennari/kennarar óskast til afleysingar í Valsárskóla

Valsárskóli óskar eftir grunnskólakennara eða kennurum til afleysingar skólaárið 2026–2027.

Óskað er eftir kennara í 84% starfi við kennslu og umsjón í 1. bekk fram að jólum, þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Einnig er óskað eftir kennara frá febrúar og út skólaárið í 100% starf við umsjón og kennslu í 7.-8. bekk, stærðfræðikennslu í 9.-10. bekk og íþróttakennslu í 3.-10. bekk.

Um getur verið að ræða einn kennarai sem sinnir báðum afleysingum og starfar út skólaárið, eða tvo tveir kennarar sem taka sitthvort tímabilið. Umsækjendur sem geta aðeins tekið annað tímabilið eru því einnig hvattir til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

● Kennsla og umsjón með námshópi.

● Að stuðla að velferð, framförum og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.

● Að starfa í samræmi við stefnu Valsárskóla.

● Þátttaka í samstarfi og þróun skólastarfs.

● Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og í samráði við skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

● Leyfisbréf til kennslu.

● Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

● Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.

● Reynsla af kennslu á yngsta stigi og/eða mið- og unglingastigi er kostur.

● Þekking eða reynsla af Byrjendalæsi er kostur vegna starfsins í 1. bekk.

● Þekking og áhugi á stærðfræði- og íþróttakennslu er kostur vegna starfsins eftir áramót.

● Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki.

● Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

● Stundvísi og samviskusemi.

● Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli.

Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf koma umsækjendur með aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi einnig til greina.

Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Valsárskóli 152911, 601 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar