
Austurbæjarskóli
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á hugarfar vaxtar, víðsýni, vellíðan og vilja til að gera stöðugt betur.
Markmið skólans er að auka þekkingu og leikni nemenda og gera þá að farsælum og sjálfstæðum einstaklingum. Einstaklingum sem hafa trú á eigin getu og takast óhræddir á við nýja hluti í viðleitni sinni við að finna hæfileikum sínum og hæfni farveg.
Grunnskólakennari - Austurbæjarskóli
Laus er til umsóknar staða kennara við Austurbæjarskóla. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott. Ráðning er tímabundin skólaárið 2022-2023.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Próf í sérkennslufræðum er kostur.
Hæfni, reynsla og áhugi á að starfa sem kennari.
Kunna skil á og geta beitt fjölbreyttum aðferðum í kennslu.
Geta og vilji til að vinna með öðrum í teymi.
Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
Faglegur metnaður.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu nemenda sem þurfa sérstakan stuðning eða nálgun í námi til lengri eða skemmri tíma í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Auglýsing birt16. júní 2022
Umsóknarfrestur28. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
KennariMetnaðurSamviskusemiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Kennari í íslensku sem öðru máli – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri / aðstoðarleikskólastjóri
Mánaland

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti