

Grafískur hönnuður
Við hjá 66°Norður leitum að skapandi og metnaðarfullum grafískum hönnuði til að taka þátt í að móta og þróa ásýnd vörumerkisins.
Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér hönnun og útfærslu á efni fyrir markaðsherferðir, stafræna miðla, prentefni og verslanir. Viðkomandi mun starfa náið með öflugu teymi að því að þróa skapandi lausnir og tryggja sterka og samræmda ásýnd 66°Norður.
Við leitum að einstaklingi með menntun á sviði grafískrar hönnunar og að lágmarki 3 ára starfsreynslu. Viðkomandi þarf að hafa sterka hönnunarvitund og næmt auga fyrir smáatriðum.
Við leggjum áherslu á sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð, frumkvæði og metnað. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptahæfni, njóti þess að vinna með öðrum og nálgist verkefni af fagmennsku, jákvæðni og ábyrgð.
- Þróun og útfærsla á grafísku efni í takt við vörumerkjastefnu 66°Norður.
- Hönnun efnis fyrir markaðsherferðir, stafræna miðla, prentefni og verslanir.
- Þátttaka í hugmyndavinnu og þróun skapandi lausna fyrir vörumerkið.
- Tryggja samræmda og sterka ásýnd vörumerkisins á öllum miðlum.
- Náið samstarf við markaðs-, vörumerkja- og önnur teymi fyrirtækisins.
- Menntun á sviði grafískrar hönnunar og að lágmarki 3 ára starfsreynsla.
- Sterk hönnunarvitund og næmt auga fyrir smáatriðum.
- Skapandi hugsun, sjálfstæði og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, jákvæðni og metnaður til að ná árangri.
- Fagmennska, ábyrgð og skipulögð vinnubrögð.
Enska
Íslenska