
Kontor Auglýsingastofa ehf
Skapandi auglýsingastofa sem lyftir vörumerkinu þínu á hærra plan.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kontor Reykjavík unnið til fjölmargra verðlauna og viðurkenninga bæði á heimavelli og úti í hinum stóra heimi.
Okkar viðskiptavinir eru að sækjast eftir þessu extra, því sem gerist þegar saman koma brennandi metnaður fyrir skapandi hugmyndum, óttaleysi við að hrinda þeim í framkvæmd og opið hugarfar.
Hafðu samband. Við erum alltaf til í spjall.

Grafískur hönnuður með reynslu
Kontor leitar að grafískum hönnuði með reynslu í auglýsingageiranum. Rétta manneskjan þarf að vera snjöll, hugmyndarík, skapandi og skemmtileg.
Ef þú hefur trausta starfsreynslu, sköpunargáfu yfir meðallagi og metnað til að láta hæfileika þína blómstra á vinnustað sem hugsar stórt, gætir þú einmitt verið manneskjan sem við leitum að.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og uppsetning auglýsinga og kynningarefnis fyrir alla miðla
- Umsjón með heildarútliti vörumerkja
- Hugmyndavinna og þátttaka í sköpunarferlinu frá upphafi til enda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í grafískri hönnun eða sambærileg menntun
- Að lágmarki fimm ára starfsreynsla á auglýsingastofu
- Haldbær reynsla af því að stýra hönnunarverkefnum
- Góð kunnátta í helstu hönnunarforritum
- Áreiðanleiki, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum
Auglýsing birt15. desember 2025
Umsóknarfrestur10. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skipholt 33, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
