
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon er nýr baðstaður í hjarta Suðurlands, við hina glæsilegu brú sem liggur yfir Hvítá við byggðina í Laugarási. Baðstaðurinn er hannaður þannig að hann fellur á fullkominn hátt inn í landslagið og veitir gestum einstaka upplifun með baðlóni á tveimur hæðum. Á útisvæði eru tvær sánur, útisturtur, kaldur pottur og heitur pottur í skógarrjóðri, sem býður upp á einstaka upplifun kyrrðar og náttúru.
Mikilvægur þáttur í töfrum Laugarás Lagoon er veitingastaðurinn Ylja þar sem matreiðslumaðurinn Gísli Matthías Auðunsson fer fyrir. Ylja býður upp á fjölbreyttan, heilnæman mat úr afurðum frá bændum í nágrenni staðarins, þá ekki síst hið ljúffenga grænmeti sem svæðið er þekkt fyrir.
Laugarás Lagoon is a new bathing destination in the heart of South Iceland, located by the magnificent bridge that spans the Hvítá River near the settlement of Laugarás. The lagoon is designed to blend seamlessly with the surrounding landscape, offering guests a unique experience with a two-level bathing area and an exceptional outdoor space.
An important part of the charm of Laugarás Lagoon is the Ylja restaurant, led by chef Gísli Matthías Auðunsson. Ylja offers a diverse and wholesome menu featuring local produce from nearby farms, with particular emphasis on the delicious vegetables for which the region is renowned.

Gestgjafi þjónustu og upplifunar/Guest experience host - Fullt starf/Full time position
Við leitum að drífandi, ábyrgu og jákvæðu starfsfólki í hlutverk gestgjafa þjónustu og upplifunar í Laugarás Lagoon sem opnaði nýverið.
Í þessari fjölbreyttu og mikilvægu stöðu tekur þú á móti gestum bæði í baðlóni og á veitingastaðnum Ylju, sem staðsettur er við baðsvæðið. Þú berð ábyrgð á því að gestir upplifi hlýju, fagmennsku og samfellda þjónustu – hvort sem þeir eru á á baðsvæðinu eða njóta góðrar máltíðar.
Sem gestgjafi þjónustu og upplifunar tekur þú virkan þátt í að móta stemningu, þjónustustefnu og teymið sem mun skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti okkar. Unnið er í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka á móti gestum af hlýju og fagmennsku hvort sem er við komu á baðstaðinn eða inná Ylju veitingastað.
- Veita gestum upplýsingar eins og þarf hverju sinni
- Tryggja að gestir fái framúrskarandi þjónustu og persónulega upplifun
- Styðja við önnur teymi eftir þörfum
- Leysa úr fyrirspurnum, koma til móts við óskir og bregðast fljótt við vandamálum
- Halda utan um gæðaviðmið og skrá athugasemdir eða ábendingar frá gestum
- Tryggja að umhverfið sé aðlaðandi, hreint og vel skipulagt
- Starfa eftir gildandi verklagsreglum, öryggiskröfum og þjónustustefnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla úr þjónustugeiranum (t.d. þjónn, móttaka, baðstaður, hótel) er kostur
- Almenn tölvukunnátta.
- Reynsla að vinna með bókunar- eða sölukerfum er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta (önnur tungumál kostur)
- Frábær þjónustulund, hlýleg framkoma og samskiptafærni
- Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Skipulögð og lausnamiðuð hugsun
- Sveigjanleiki til að vinna kvöld og helgar ef þarf
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
- Við getum boðið upp á húsnæði í nálægð við vinnustaðinn
- Tækifæri til starfsþróunar
- Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
- Aðgang að þjónustu fyrirtækisins
Auglýsing birt7. janúar 2026
Umsóknarfrestur21. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skálholtsvegur 1, 806 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Hotel Receptionist
Hótel Keflavík - Diamond Suites - Diamond Lounge - KEF Restaurant - KEF SPA & Fitness

Controller í GOC - Sumarstarf 2026
Icelandair

Helgarstarf í gleraugnaverslun Eyesland í Kringlan
Eyesland Gleraugnaverslun

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust

Starfsmaður óskast í verslun Daríu & Herrar
Daria.is

Lagerstarf
Ísfell

Supervisor í Jet Center - Sumarstörf 2026
Icelandair

Verslunarstjóri
Rafkaup

Afgreiðslustörf Smáratorg - Miðhraun - Reykjanesbær
Sport24

Afgreiðslustarf í Vape verslun! (Hlutastarf)
Skýjaborgir Vape Shop

Íþróttamiðstöðin í Vogum óskar eftir kvenkyns starfsfólki
Sveitarfélagið Vogar

Hlutastörf í Kringlu og Smáralind.
The Body Shop