
Umhverfissvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum.
Undir Umhverfissvið Múlaþings heyra hafnir, slökkvilið, umhverfis-og framkvæmdarmál.

Garðyrkjustjóri Múlaþings
Umhverfis- og framkvæmdasvið Múlaþings óskar eftir að ráða garðyrkjustjóra til starfa hjá sveitarfélaginu. Garðyrkjustjórinn sér meðal annars um að sinna öllum gróðri í almenningsgörðum, á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins ásamt því að hafa yfirumsjón með vinnuskóla Múlaþings.
Um fullt starf er að ræða.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. desember 2021.
Menntunar- og hæfniskröfur
Garðyrkjufræðingur með sveinspróf af skrúðgarðyrkju
Reynsla af verkstjórn.
Mikil samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að vinna í teymi
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta í máli og ritun
Reglusemi og stundvísi
Líkamlegt hreysti
Almenn ökuréttindi og vinnuvélapróf er kostur
Frumkvæði, öguð vinnubrögð og röggsemi til verka
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning, umsjón og eftirlit með með almenningsgörðum og opnum svæðum sveitarfélagsins.
Kortlagning og framkvæmd verkefna
Yfirumsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins
Þjálfun og fræðsla flokksstjóra
Fylgjast með viðhaldi og öryggi véla og tækja
Klippingar og grisjun á trjám og runnum
Útplöntun á trjám, runnum, sumarblómum og haustlaukum
Garðsláttur
Viðhald á beðum, bekkjum og blómakörum
Umsjón með gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana sem og útboðsgagna
Auglýsing birt5. júlí 2021
Umsóknarfrestur4. ágúst 2021
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiLíkamlegt hreystiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiSveinsprófÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
